Ekki nóg með að ég
sendi frá mér rafbylgjur og skemmi öll raftæki sem eru mér
nálægt heldur get ég ekki bakað!!! Ég held að það sé
raftækisbakstursbölvun sem hvílir á mér.....og þetta er
pottþétt ríka Grikkjanum að kenna...sem ég var í fyrra
lífi!!
Í orðsins fyllstu kann
ég bara að baka vandræði.... Þetta byrjaði allt þegar ég var
14 ára að baka sjálf skúffuköku í Englandi nema það að kakan
sprakk í ofninum....
ofninn var ein deigklessa að innan og
þurfti ég að þrífa í marga klukkutíma. Svo var það eitt
sunnudagsboðið, ég svo myndarleg að baka pönnukökur...en
missti skálina á gólfið og deigið hentist upp um alla
veggi..... ég er ennþá að finna leifar í loftinu.
Og hver
heldur ennþá í bolludagshefðina!!!! Hver segir að
bolludagurinn eigi að vera á mánudegi...?? Ég ákvað að hafa
hann á miðvikudegi í ár.....bara 5 dögum fyrr......hefð
smefð
Svo síðustu helgi ætlaði ég að
koma stelpunum á óvart með eina bananaköku í farartaskinu fyrir
sumarbústaðalærihelgina okkar. Kvöldið áður var ég á hundavaði við
að klára að baka, þrífa og læra á sama tíma.... gott að ég var ekki
húsmóðir í gamla daga... ég hefði örugglega stungið af...eða
kannski frekar að fólkið hefði flúið frá mér!!! Jæja ég var
himinglöð yfir kökunni sem var farin að hefast svona líka vel eftir
10 mín....en nei... 3 mínútum seinna pompaði allt!!!alveg eins og
Geysir!! Afhverju sagði mér enginn
að hjartasalt er ekki það sama og
natron..........
jæja ég huggaði mig á
því að ég græddi þarna alveg ágætis
hrökkbrauð
Ég allavega hendi hér inn nokkrum myndum úr sumó!!!